Ferill 111. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 111 — 111. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um viðveru herliðs á Keflavíkurflugvelli.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
Hversu marga daga hafði erlent herlið viðveru á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli á árunum 2007–2017? Svar óskast sundurliðað eftir árum, upprunaríki herliðs og tilefni viðveru.
Skriflegt svar óskast.