Ferill 632. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1298  —  632. mál.
2. umræða.



Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vátryggingastarfsemi og lögum um vátryggingasamstæður (reglugerðir og reglur).

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sóleyju Ragnarsdóttur og Guðrúnu Þorleifsdóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Guðrúnu Finnborgu Þórðardóttur og Ragnheiði Morgan Sigurðardóttur frá Fjármálaeftirlitinu. Nefndinni barst umsögn um málið frá Fjármálaeftirlitinu.
    Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, annars vegar og lögum um vátryggingasamstæður, nr. 60/2017, hins vegar. Er með breytingunum m.a. brugðist við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA við innleiðingu á framkvæmdastöðlum ESB sem gefnir eru út ársfjórðungslega og varða tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld vegna ársfjórðungslegra gagnaskila.
    Í umsögn sinni til nefndarinnar lagði Fjármálaeftirlitið til breytingu á 1. gr. frumvarpsins um heimild stofnunarinnar til að setja reglur um upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla til að reikna besta mat vátryggingaskuldar vegna ársfjórðungslegra gagnaskila. Leggur Fjármálaeftirlitið til að í ákvæðinu verði tekið fram að við setningu reglnanna sé stofnuninni heimilt að vísa til birtingar á framkvæmdarreglugerðum sem innihalda upplýsingarnar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins á ensku. Nefndin fellst á tillögu Fjármálaeftirlitsins og leggur til viðeigandi breytingu á 1. gr. frumvarpsins.
    Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    1. efnismgr. 1. gr. orðist svo:
    Fjármálaeftirlitið setur reglur þar sem fram koma upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla til að reikna besta mat vátryggingaskuldar vegna ársfjórðungslegra gagnaskila. Við setningu reglnanna er Fjármálaeftirlitinu heimilt að vísa til birtingar á framkvæmdarreglugerðum sem innihalda upplýsingarnar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins á ensku.

    Silja Dögg Gunnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 2. apríl 2019.

Óli Björn Kárason,
form., frsm.
Þorsteinn Víglundsson. Brynjar Níelsson.
Bryndís Haraldsdóttir. Einar Kárason. Ólafur Þór Gunnarsson.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Smári McCarthy.