Framkvæmd þingsályktunarinnar
Ferill 403. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1547 — 403. mál.
Síðari umræða.
Breytingartillaga
við tillögu til þingsályktunar um fimm ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2019–2023.
Frá umhverfis- og samgöngunefnd.
9. tölul. 3. kafla verði svohljóðandi: Mótað verði framtíðarfyrirkomulag fjarskiptatíðnimála og gervihnattaþjónustu, þ.m.t. gervihnattaleiðsögu, á Íslandi og norðurslóðum í samvinnu við samgönguyfirvöld.