Ferill 505. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 830 — 505. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um svigrúm til launahækkana.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hver var heildarupphæð allra launagreiðslna á árunum 2014–2018?
2. Hver var landsframleiðsla áranna 2014–2018?
3. Hver má búast við að heildarupphæð launagreiðslna og landsframleiðsla verði á árinu 2019 miðað við forsendur fjárlaga fyrir árið 2019?
4. Telur ráðherra eðlilegt að horfa til hlutfalls heildarupphæðar launagreiðslna á móti landsframleiðslu þegar skoða á svigrúm til launahækkana? Hvaða önnur viðmið telur ráðherra að mætti helst styðjast við svo að umræða um svigrúm til launahækkana geti byggst á gögnum?