Ferill 561. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 946 — 561. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um tekjur Ríkisútvarpsins.
Frá Óla Birni Kárasyni.
1. Hvernig hafa tekjur Ríkisútvarpsins af útvarpsgjaldi þróast frá árinu 2014 á föstu verðlagi? Óskað er eftir sundurliðun fyrir hvert ár og áætlun fyrir árið 2019.
2. Hvernig hafa auglýsingatekjur Ríkisútvarpsins þróast frá árinu 2014 á föstu verðlagi? Óskað er eftir sundurliðun fyrir hvert ár og áætlun fyrir árið 2019.
3. Hvernig hafa tekjur Ríkisútvarpsins af svokallaðri kostun þróast frá árinu 2014 á föstu verðlagi? Óskað er eftir sundurliðun fyrir hvert ár og áætlun fyrir árið 2019.
4. Hvaða aðrar tekjur, reglulegar og óreglulegar, hefur Ríkisútvarpið haft frá árinu 2014 á föstu verðlagi? Óskað er eftir að upplýsingarnar verði sundurliðaðar eftir tegund tekna fyrir hvert ár og áætlun fyrir árið 2019.
Skriflegt svar óskast.