Ferill 580. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 977 — 580. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um málefni Hljóðbókasafns Íslands.
Frá Guðmundi Andra Thorssyni.
1. Stendur til að skoða starfsemi Hljóðbókasafns í ljósi breyttra markaðsaðstæðna nú þegar æ meira tíðkast að gefa út bækur á almennum markaði sem hljóðbækur og þær eru í auknum mæli aðgengilegar í streymislausnum?
2. Hyggst ráðherra leita skýringa á því hvers vegna hlutfall lánþega Hljóðbókasafns er verulega hærra hér á landi en til dæmis annars staðar á Norðurlöndunum?
3. Telur ráðherra eðlilegt að bækur séu lesnar inn á vegum Hljóðbókasafns og dreift á sama tíma og þær koma út á almennum markaði á pappír, sem rafbækur og í hljóðbókaformi?
4. Telur ráðherra eðlilegt að sambærileg takmörkun sé til staðar þegar komi að útlánum Hljóðbókasafnsins á einstökum verkum eins og á útlánum almennra bókasafna?
5. Telur ráðherra að sanngjarnar greiðslur komi fyrir afnot verka til höfunda og annarra rétthafa? Ef ekki, hyggst ráðherra gera bót á því?
Skriflegt svar óskast.