Ferill 704. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1435 — 704. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit
um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 260/2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneyti og Ernu Hjaltested frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 260/2019 frá 25. október 2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1717 frá 14. nóvember 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1093/2010 að því er varðar aðsetur Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar.
Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Alþingi, 18. maí 2020.
Sigríður Á. Andersen, form. |
Bryndís Haraldsdóttir, frsm. |
Ari Trausti Guðmundsson. |
Álfheiður Eymarsdóttir. | Gunnar Bragi Sveinsson. | Logi Einarsson. |
Silja Dögg Gunnarsdóttir. | Rósa Björk Brynjólfsdóttir. | Þorgerður K. Gunnarsdóttir. |