Ferill 373. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 463 — 373. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis- og auðlindaráðherra um friðlýst svæði.
Frá Karli Gauta Hjaltasyni.
1. Hver eru friðlýst svæði, friðaðar vistgerðir, vistkerfi og tegundir á Íslandi og á hvaða forsendum voru þau friðlýst og friðuð?
2. Hvaða svæði, vistkerfi, vistgerðir og tegundir eru í ferli til friðunar í ráðuneytinu, hversu langt er ferlið komið og á hvaða forsendum á að friðlýsa eða friða?
3. Hve stór eru einstök svæði sem friðuð hafa verið og hvert er mat ráðherra á umfangi, ástandi eða viðgangi vistgerða, vistkerfa og tegunda sem friðlýst og friðuð hafa verið?
4. Hvaða úttektir eða rannsóknir hafa verið gerðar á framangreindum friðlýstum svæðum, friðuðum vistgerðum, vistkerfum og tegundum sem friðlýst hafa verið? Í hvaða tilfellum eru til stjórnunar- og verndaráætlanir og ef þær eru ekki til, hvernig gengur vinna við þær í einstökum tilfellum?
5. Í hvaða tilfellum hefur friðlýsingu og friðun verið aflétt?
Skriflegt svar óskast.