Ferill 378. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 470 — 378. mál.
Fyrirspurn
til félags- og barnamálaráðherra um skerðingar á lífeyri almannatrygginga.
Frá Ólafi Ísleifssyni.
1. Hversu mikið skertist lífeyrir almannatrygginga á árinu 2018 vegna:
a. atvinnutekna lífeyrisþega,
b. greiðslna til lífeyrisþega úr lífeyrissjóðum,
c. tekna lífeyrisþega annarra en atvinnutekna og greiðslna úr lífeyrissjóðum?
2. Hversu margir í heild og hversu hátt hlutfall lífeyrisþega sætti skerðingum vegna:
a. atvinnutekna,
b. greiðslna úr lífeyrissjóðum,
c. tekna annarra en atvinnutekna og greiðslna úr lífeyrissjóðum?
Svör óskast sundurliðuð eftir því hvort ræðir um elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.
Skriflegt svar óskast.