Ferill 725. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1210 — 725. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um sjúkrahótel Landspítala.
Frá Óla Birni Kárasyni.
1. Hvert var áætlað rekstrarhagræði af sjúkrahóteli á sama reit þegar staðarval fyrir nýjan Landspítala var kynnt?
2. Hvert hefur verið raunverulegt rekstrarhagræði Landspítala af hótelinu á ári frá því að það var opnað árið 2019?
3. Hver var endanlegur byggingarkostnaður sjúkrahótelsins með innréttingum og tækjum?
4. Hver hefur rekstrarkostnaður sjúkrahótelsins verið á ári frá opnun þess? Óskað er eftir sundurliðun eftir launum og launatengdum gjöldum, húsnæðiskostnaði og öðrum kostnaði.
Skriflegt svar óskast.