Ferill 174. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Prentað upp.
Þingskjal 175 — 174. mál.
Breyttur texti.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um einangrun fanga.
Frá Helga Hrafni Gunnarssyni.
1. Við hvaða skilgreiningu á einangrun er stuðst í réttarvörslukerfinu?
2. Telst þriggja mánaða dvöl fanga á öryggisdeild án samneytis við aðra fanga vera einangrun?
3. Fór fram könnun á mögulegum andlegum afleiðingum allt að þriggja mánaða einangrunarvistunar á öryggisdeild áður en reglur um slíkar deildir voru settar, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 240/2018 um fullnustu refsinga?
4. Telur ráðherra tímabært að endurskoða reglur um vistun á öryggisdeild?
Skriflegt svar óskast.