Ferill 275. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 387  —  275. mál.




Fyrirspurn


til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um línuívilnanir til fiskiskipa.

Frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur.


    Hvert var magn línuívilnunar til fiskiskipa skv. 8. mgr. 11. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, sundurliðað eftir fiskveiðiárum tímabilið 2018/2019–2020/2021? Óskað er eftir að í svarinu komi fram skráningarnúmer skips, nafn þess og einkennisstafir, eigandi, heimahöfn, stærð og útgerðarflokkur, úthlutað aflamark, aflamark sem flutt hefur verið frá skipinu, afli skips, magn línuívilnunar eftir beitningaraðferð, nafn byggðarlags þar sem var landað, magn afla sem þar var landað og nafn byggðarlags þar sem línan var beitt eða stokkuð upp. Aflatölur og aflamark taki til eftirtalinna tegunda: þorsks, ýsu, ufsa, steinbíts, gullkarfa, keilu og löngu. Allar tölur miðist við óslægt.


Skriflegt svar óskast.