Ferill 331. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 467 — 331. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um kostnað ríkisins vegna sóttvarnahótela.
Frá Njáli Trausta Friðbertssyni.
1. Hver hefur kostnaður ríkisins verið fyrir hverja nótt að meðaltali á sóttvarnahótelum og frá því að heimsfaraldurinn hófst?
2. Hver hefur verið heildarkostnaður ríkisins við leigu og rekstur sóttvarnahótela frá því að faraldurinn hófst?
Skriflegt svar óskast.