Ferill 365. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 512 — 365. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um loftslagsáhrif botnvörpuveiða.
Frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.
Telur ráðherra ástæðu til að kanna loftslagsáhrif botnvörpuveiða innan landhelgi og efnahagslögsögu Íslands í ljósi þess að erlendar rannsóknir á áhrifum botnvörpuveiða á losun gróðurhúsalofttegunda benda til að rask á hafsbotni losi yfir milljarð tonna af koltvísýringi á ári, sem samsvarar því sem allar flugsamgöngur heimsins losa? Mun ráðherra beita sér fyrir aðgerðum í þessum efnum? Ef svo er, með hvaða hætti?
Skriflegt svar óskast.