Ferill 74. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 74 — 74. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð, nr. 111/2016 (stuðningur til öflunar íbúðarhúsnæðis).
Flm.: Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Inga Sæland, Jakob Frímann Magnússon, Tómas A. Tómasson.
1. gr.
a. Í stað orðanna „kaupa á fyrstu íbúð“ í 1. mgr. kemur: öflunar íbúðarhúsnæðis.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Öflun íbúðarhúsnæðis skv. 1. mgr. á við um kaup einstaklinga á íbúðarhúsnæði til eigin nota, sem hafa ekki átt íbúðarhúsnæði undangengin þrjú ár.
2. gr.
a. Í stað orðanna „kaupa á fyrstu íbúð“ í a-lið 1. mgr. kemur: öflunar íbúðarhúsnæðis.
b. Í stað orðanna „fyrstu íbúð“ í b-lið 1. mgr. kemur: húsnæði til eigin nota.
c. Í stað orðanna „fyrstu íbúð“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: húsnæði til eigin nota.
d. Í stað orðanna “áður átt íbúð“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: átt íbúð undangengin þrjú ár.
e. Í stað orðanna „fyrstu íbúð“ tvívegis í 1. málsl. 3. mgr. kemur: íbúðarhúsnæði til eigin nota.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
6. gr.
1. Lög um húsnæðismál, nr. 44/1998: Í stað orðsins „fimm“ í orðskýringunni Hlutdeildarlán í 2. gr., 1. málsl. 1. mgr. 29. gr. a og 2. tölul. 1. mgr. 29. gr. b laganna kemur: þrjú.
2. Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003: Í stað orðanna „kaupa á fyrstu íbúð“ tvívegis í 12. tölul. 28. gr. laganna kemur: öflunar íbúðarhúsnæðis.
3. Lög um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016: Í stað orðanna „fyrstu fasteign“ í 2. málsl. 2. mgr. 25. gr. og 2. málsl. 2. mgr. 27. gr. kemur: fasteign sem uppfylla öll skilyrði laga um stuðning til öflunar íbúðarhúsnæðis.
Greinargerð.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. og 3. gr.
Um 4. gr.
Um 5. gr.
Um 6. gr.
Með 2. tölul. greinarinnar er lagt til að orðalag viðkomandi ákvæðis laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, verði fært til samræmis við þá stefnumörkun sem leiðir af 1. gr. frumvarpsins. Þessu er ekki ætlað að breyta hinum efnislega rétti sem í ákvæðinu felst heldur einungis að útvíkka gildissvið þess á sama hátt og í öðrum ákvæðum frumvarpsins.
Með 3. tölul. greinarinnar er lagt til að reglur um hámark veðhlutfalls samkvæmt lögum nr. 118/2016, um fasteignalána til neytenda, verði víkkaðar út til samræmis við markmið 1. gr. frumvarpsins svo að neytendur sem hafa verið utan húsnæðismarkaðar undangengin þrjú ár geti átt auðveldara með að eignast aftur íbúðarhúsnæði til eigin nota.
Gert er ráð fyrir því að verði frumvarp þetta að lögum skuli gildandi reglugerðir, reglur og önnur stjórnvaldsfyrirmæli verða túlkuð til samræmis við þá lagastoð sem yrði fyrir hendi í viðkomandi lögum svo breyttum, til samræmis við markmið frumvarpsins.