Ferill 961. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1505 — 961. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um meiðsli og eftirlit með íþróttastarfi barna.
Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.
1. Er gerð úttekt á því hvort þeir sem bjóða upp á íþróttastarfsemi fyrir börn séu með æfingar við hæfi miðað við líkamlega getu og þroska barna?
2. Er haldið utan um alvarleg meiðsli hjá börnum í íþróttastarfi hér á landi?
3. Er gerð krafa um að íþróttafélögin séu með skrá um álagsmeiðsli hjá iðkendum?
4. Er einhvers konar gæðaeftirlit með íþróttastarfi barna hér á landi? Ef svo er, hvernig er það framkvæmt?
Skriflegt svar óskast.