Ferill 335. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 347 — 335. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um niðurgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands á aðgerðum vegna skarðs í vör.
Frá Guðrúnu Hafsteinsdóttur.
1. Hve háa upphæð hafa Sjúkratryggingar Íslands greitt vegna aðgerða á skarði í vör hjá börnum frá 1. janúar 2020?
2. Hafa Sjúkratryggingar Íslands hafnað niðurgreiðslu vegna einhverra aðgerða á skarði í vör hjá börnum frá 1. janúar 2020?
3. Hve mörg börn biðu 1. september 2022 eftir aðgerð vegna skarðs í vör?
4. Hve langur er meðalbiðtími barna eftir aðgerð vegna skarðs í vör?
Skriflegt svar óskast.