Ferill 280. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 433 — 280. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2021, nr. 54/2021, nr. 385/2021 og nr. 146/2022
um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ingólf Friðriksson frá utanríkisráðuneyti og Guðrúnu Þorleifsdóttur og Elísabetu Júlíusdóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
1. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2021 frá 5. febrúar 2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
a. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1156 frá 20. júní 2019 um að auðvelda dreifingu sjóða um sameiginlega fjárfestingu yfir landamæri og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 345/2013, (ESB) nr. 346/2013 og (ESB) nr. 1286/2014.
b. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1160 frá 20. júní 2019 um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB og 2011/61/ESB að því er varðar dreifingu sjóða um sameiginlega fjárfestingu yfir landamæri.
2. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 54/2021 frá 5. febrúar 2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2341 frá 14. desember 2016 um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri (endurútgefin).
3. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 385/2021 frá 10. desember 2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
a. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2365 frá 25. nóvember 2015 um gagnsæi í fjármögnunarviðskiptum með verðbréf og um endurnotkun og breytingu á reglugerð (ESB) nr. 648/2012.
b. Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/463 frá 30. janúar 2019 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2365 að því er varðar listann yfir aðila sem njóta undanþágu.
4. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2022 frá 29. apríl 2022 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og fella inn í samninginn framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/27 frá 27. september 2021 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 236/2012 að því er varðar breytingu á viðeigandi viðmiðunarmörkum fyrir tilkynninguna um verulegar mikilvægar hreinar skortstöður í hlutabréfum.
Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Orðið „verulegar“ í 4. tölul. tillögugreinarinnar falli brott.
Birgir Þórarinsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þorgerður K. Gunnarsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 26. október 2022.
Bjarni Jónsson, form. |
Logi Einarsson, frsm. |
Óli Björn Kárason. | |
Jakob Frímann Magnússon. | Jóhann Friðrik Friðriksson. |