Ferill 425. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 484 — 425. mál.
Fyrirspurn
til félags- og vinnumarkaðsráðherra um skerðingu réttinda almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar.
Frá Guðmundi Inga Kristinssyni.
1. Hverjar eru skerðingarreglur einstakra réttindaflokka laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, og laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007?
2. Hve mikið hafa greiðslur úr ríkissjóði til einstaklinga lækkað vegna reglnanna á ári hverju undanfarin þrjú ár og hvernig skiptast þær fjárhæðir milli réttindaflokka?
Skriflegt svar óskast.