Ferill 584. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 854 — 584. mál.
Beiðni um skýrslu
frá heilbrigðisráðherra um stöðu rannsókna í líf- og læknavísindum með áherslu á rannsóknir krabbameina.
Frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, Daða Má Kristóferssyni, Guðbrandi Einarssyni, Sigmari Guðmundssyni, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, Andrési Inga Jónssyni, Birni Leví Gunnarssyni, Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, Helgu Völu Helgadóttur, Oddnýju G. Harðardóttur og Jakobi Frímanni Magnússyni.
Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, er þess óskað að heilbrigðisráðherra flytji Alþingi skýrslu um stöðu rannsókna í líf- og læknavísindum með sérstakri áherslu á rannsóknir á sviði krabbameina. Við vinnslu skýrslunnar verði leitað svara við spurningum á borð við:
– hvernig ráðgert er að sinna frumrannsóknum á krabbameinum á nýjum Landspítala í framhaldi af klínískum rannsóknum á sjúkrahúsinu,
– hvort fullnægjandi aðstaða hefur verið tryggð fyrir nýja dagdeild blóð- og krabbameinslækninga á spítalanum,
– hvernig rannsóknum er sinnt utan sjúkrahúsa á opinberum rannsóknastofum og á hvaða rannsóknastofum,
– hvernig ráðherra sér fyrir sér að rannsóknum á sviði krabbameina verði sinnt í alþjóðlegu samstarfi.
Greinargerð.