Samantekt um þingmál

Póstþjónusta

181. mál á 154. löggjafarþingi.
Innviðaráðherra.

Markmið

Að greiða fyrir aukinni notkun bréfakassasamstæða. Að greiða fyrir innleiðingu Evrópugerða.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að heimildir til að nýta bréfakassasamstæður verði rýmkaðar til muna þannig að alþjónustuveitandi geti ákveðið í samráði við sveitarfélag að setja upp bréfakassasamstæður í tilteknu póstnúmeri þannig að íbúar geti sótt póstinn sinn í göngufæri. Þá er lagt til að styrkja lagastoð fyrir innleiðingu Evrópugerðar og setja heimild til innleiðingar annarrar Evrópugerðar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um póstþjónustu, nr. 98/2019.
  • Endurflutt: Póstþjónusta, 531. mál (innviðaráðherra) á 153. þingi (02.12.2022)

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Aðrar upplýsingar

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/644 frá 18. apríl 2018 um bögglaútburðarþjónustu yfir landamæri.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1263 frá 20. september 2018 um eyðublöð fyrir veitendur bögglaútburðarþjónustu til að leggja fram upplýsingar samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/644.



Síðast breytt 15.09.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.