Samantekt um þingmál

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga

478. mál á 154. löggjafarþingi.
Innviðaráðherra.

Markmið

Að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga fylgi þróun sveitarstjórnarstigsins. Að sjóðurinn styðji áfram meðalstór sveitarfélög sem eru með flóknar útgjaldaþarfir. Að í regluverki sjóðsins séu innbyggðir hvatar til sameiningar sveitarfélaga. Að regluverkið stuðli enn frekar að sjálfbærni sveitarfélaga. Að sjóðurinn veiti áfram veikari byggðum sérstök framlög. Að sjóðurinn styðji við sveitarfélög með höfuðstaðarhlutverk. Að framlög vegna nemenda með íslensku sem annað mál endurspegli þróun málaflokksins og að sveitarfélög njóti sama réttar til framlaga. Að breytingarnar miði að einfaldara og gagnsærra regluverki. Að gæta að grundvallarhlutverki sjóðsins, sem er að jafna stöðu sveitarfélaga með lægri tekjur en sambærileg sveitarfélög, þannig að allir íbúar landsins fái notið sams konar þjónustu frá sínu sveitarfélagi, sama hvar þeir búa.

Helstu breytingar og nýjungar

Um heildarendurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga er að ræða þar sem reglur um starfsemi sjóðsins verða fluttar úr lögum um tekjustofna sveitarfélaga í ný heildarlög. Lagt er til að nokkur af helstu framlögum sjóðsins verði sameinuð í eitt framlag. Þá eru lagðar til ýmsar breytingar til að einfalda regluverk sjóðsins og auka gagnsæi þess.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög en við gildistöku þeirra verða breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, og sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Aðrar upplýsingar




Löggjöf og upplýsingar um sambærilegt fyrirkomulag á Norðurlöndum

Danmörk
Bekendtgørelse af lov om kommunal udligning og generelle tilskud til kommuner  LBK nr 63 af 19/01/2021.


Finnland
Lag om statsandel för kommunal basservice  29.6.2021/618.
Lag om finansiering av undervisnings- och kulturverksamhet  29.12.2009/1705.


Noregur

Svíþjóð
Lag om kommunalekonomisk utjämning (2004:773).



Síðast breytt 30.11.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.