Samantekt um þingmál

Stjórn fiskveiða

447. mál á 141. löggjafarþingi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að skýrgreina betur ákvæði um stærðarmörk smábáta í fiskveiðistjórnarkerfinu og breyta úthlutun afla til smábáta.

Helstu breytingar og nýjungar

Bátar í krókaaflamarkskerfi megi ekki vera stærri en 15 brúttótonn og hámarksafli í strandveiði verði ákveðið hlutfall, 3,6%, af heildarafla viðkomandi fisktegundar í stað fastákveðins heildarafla.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.
  • Skylt mál: Stjórn fiskveiða, 657. mál (sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra) á 140. þingi (26.03.2012)

Kostnaður og tekjur

Ekki eru forsendur til að meta áhrifin á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnaraðilar eru flestir andsnúnir frumvarpinu og telja það ekki ná yfirlýstum markmiðum um nýliðun og jafnræði.

Afgreiðsla

Frumvarpið var afgreitt úr nefnd til 2. umræðu.


Síðast breytt 12.04.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.