Samantekt um þingmál

Tekjuskattur

680. mál á 141. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að koma til móts við fólk sem tók lán til íbúðarkaupa með lánsveðum á árunum 2004-2008.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til ákvæði til bráðabirgða sem gildir einu sinni og kveður á um sérstaka tegund vaxtabóta, lánsveðsvaxtabætur, fyrir íbúðareigendur sem tóku fasteignaveðlán á tímabilinu 1. janúar 2004 til og með 31. desember 2008 og áttu fasteignina 31. desember 2010. Þetta á við um eignir þar sem lán er tryggt með veði í fasteign í eigu annars einstaklings. Lánsveðsvaxtabætur skulu nema 2% af mismun á eftirstöðvum allra fasteignaveðlána 31. desember 2010 og 110% af fasteignamati þeirrar fasteignar sem lánið var tekið til kaupa eða byggingar á. Lánsveðsvaxtabætur mega ekki vera hærri en 160 þús. kr. hjá einstaklingi og 280 þús. kr. hjá hjónum og sambúðarfólki. Lánsveðsvaxtabætur verða greiddar út einu sinni og eigi síðar en 15. janúar 2014.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt.

Kostnaður og tekjur

Ríkissjóður greiðir ekki meira en 500 milljónir kr. vegna þessara aðgerða og ef heildarfjárhæð bóta reynist hærri skerðast allar bætur.

Umsagnir (helstu atriði)

Einungis barst umsögn frá Ríkisskattstjóra sem gerði ýmsar efnislegar athugasemdir.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum sem eiga að tryggja betur markmið frumvarpsins.

Fjölmiðlaumfjöllun

Til móts við skuldara með lánsveð. RUV 14.4.2012.

Tillaga lífeyrissjóða um lánsveð gagnast engum að mati ríkisstjórnarinnar. Visir.is, 28.11.2012.



Síðast breytt 11.04.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.