Samantekt um þingmál
504. mál á 143. löggjafarþingi.
Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Markmið
Að tryggja með lögum lágmarkslaun á íslenskum vinnumarkaði og að þau nægi til einstaklingsframfærslu samkvæmt neyslustigi í landinu eins og það mælist hverju sinni.
Helstu breytingar og nýjungar
Óheimilt verður að greiða lægri laun en lágmarkslaun. Þau skulu fylgja neysluviðmiði sem byggir á raunverulegum útgjöldum einstaklings vegna tiltekinna útgjaldaflokka.
Breytingar á lögum og tengd mál
Frumvörp um lágmarkslaun á árunum 1976-2014.
Kostnaður og tekjur
Kemur ekki fram í frumvarpi.
Afgreiðsla
Ekki var mælt fyrir frumvarpinu.
Aðrar upplýsingar
Jón Þór Sturluson, Guðný Björk Eydal, Andrés Júlíus Ólafsson (2011).
Íslensk neysluviðmið. Velferðarráðuneytið.
Löggjöf í Bretlandi
National Minimum Wage Act
1998.
Síðast breytt 19.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.
Um samantektir
Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.
Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.
Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.