Samantekt um þingmál

Ívilnanir til nýfjárfestinga á Íslandi

567. mál á 143. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að efla nýfjárfestingu í atvinnurekstri.

Helstu breytingar og nýjungar

Árleg velta fyrirhugaðs fjárfestingarverkefnis þarf að nema að minnsta kosti 300 m.kr. eða  skapa að minnsta kosti 20 ársverk á fyrstu tveimur árum þess. Að minnsta kosti 75% af fjárfestingarkostnaði verði fjármögnuð án ríkisaðstoðar og þar af verði að lágmarki 20% fjármögnuð af eigin fé. Almennt er gert ráð fyrir að ívilnanir geti numið allt að 15% af skilgreindum fjárfestingarkostnaði. Þá er gert ráð fyrir að skatthlutfall fasteignaskatts skuli vera 50% lægra en lögbundið lágmark kveður á um og undanþágur eru frá tollum og vörugjöldum vegna innflutnings og kaupa á byggingarefnum, vélum, tækjum o.fl.

Breytingar á lögum og tengd mál

Ný lög sem byggja á grunni laga nr. 99/2010 um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi, sem féllu úr gildi í árslok 2013.

Kostnaður og tekjur

Ekki eru forsendur til að leggja mat á hugsanlegan kostnað eða ábata.

Afgreiðsla

Ekki var mælt fyrir málinu.

Aðrar upplýsingar

Upplýsingasíða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis um ívilnanir vegna nýfjárfestinga.

Byggðakort fyrir Ísland 2014-2020 samþykkt af ESA.



Síðast breytt 22.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.