Samantekt um þingmál

Jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla

562. mál á 144. löggjafarþingi.
Félags- og húsnæðismálaráðherra.

Markmið

Markmið frumvarpsins er að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns að því er varðar aðgang að eða afhendingu á vöru og aðgang að eða veitingu þjónustu. Að innleiða tilskipun Evrópusambandsins 2004/113 EB, um bann við mismunun í tengslum við kaup á vöru og þjónustu.

Helstu breytingar og nýjungar

Óheimilt verður að mismuna fólki við ákvörðun bóta og iðgjalda vegna kostnaðar sem tengist meðgöngu og fæðingu. Einnig verður óheimilt að mismuna einstaklingum á grundvelli kyns þegar kemur að því að ákvarða iðgjöld eða bótafjárhæðir vegna vátryggingarsamnings eða samkvæmt annarri skyldri fjármálaþjónustu. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð. 

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir voru almennt jákvæðar.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópusambandsins 2004/113/EB, um beitingu meginreglunnar um jafna meðferð karla og kvenna að því er varðar aðgang að og afhendingu á vörum og þjónustu.



Síðast breytt 01.07.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.