Samantekt um þingmál

Jarðalög

74. mál á 144. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að festa og skýra betur núgildandi ákvæði í lögum.

Helstu breytingar og nýjungar

Að breyting á notkun landbúnaðarlands verði að hluta til færð frá ráðherra til sveitarfélaga sem fara með skipulagsvald samkvæmt ákvæðum skipulagslaga. Réttur ábúenda ríkisjarða til að fá ábýlisjarðir keyptar er skýrður og réttur sveitarfélaga til kaupa á ríkisjörðum á matsverði afnuminn.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á jarðalögum nr. 81/2004.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki bein áhrif á fjárhag ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Nokkrar almennar ábendingar bárust í umsögnum.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítilsháttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Skipulagslög nr. 123/2010


Síðast breytt 27.03.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.