Samantekt um þingmál

Skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða

75. mál á 144. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að bregðast við bágri stöðu lífeyrissjóða starfsmanna hins opinbera.

Helstu breytingar og nýjungar

Lífeyrissjóði verði heimilt að hafa allt að 13% mun á milli eignarliða og framtíðarskuldbindinga í stað 11%. Heimilt verði að hafa meira en 10% mun á milli eignarliða og lífeyrisskuldbindinga í sjö ár í stað sex ára.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Engar umsagnir voru um þetta mál.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt sem lög nr. 96/2014.

Aðrar upplýsingar

Um er að ræða tímabundna aðgerð til að vinna tíma til að vinna að varanlegri úrlausn á stöðu A-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í heildstæðu samhengi við lífeyrisréttindi og kjaramál á vinnumarkaði.


Síðast breytt 14.10.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.