Samantekt um þingmál

Vinnsla persónuupplýsinga í löggæslutilgangi

555. mál á 149. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að stuðla að því að yfirvöld á sviði refsivörslu fari með persónuupplýsingar í samræmi við grundvallarsjónarmið og reglur um persónuvernd og friðhelgi einkalífs og að tryggja áreiðanleika og gæði slíkra upplýsinga, auk þess að greiða fyrir skilvirkum störfum og nauðsynlegri miðlun persónuupplýsinga þessara yfirvalda sín á milli og til annarra.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að ákvæði í Evróputilskipun um vinnslu persónuupplýsinga á sviði refsivörslu verði lögfest hér á landi. Einnig er lagt til að settar verði reglur um þær skrár og upplýsingakerfi sem notast er við af hálfu yfirvalda á sviði refsivörslu, auk þess að lögfesta skýrar heimildir fyrir sömu yfirvöld til að miðla persónuupplýsingum sín á milli og til annarra aðila, þar á meðal yfirvalda í öðrum löndum. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra verða breytingar á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, lögreglulögum, nr. 90/1996, lögum um fullnustu refsinga, nr. 15/2016, lögum um erfðaefnisskrá lögreglu, nr. 88/2001, og lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/680 frá 27. apríl 2016 um vernd einstaklinga að því er varðar vinnslu lögbærra yfirvalda á persónuupplýsingum í tengslum við að koma í veg fyrir, rannsaka, koma upp um eða saksækja fyrir refsiverð brot eða fullnægja refsiviðurlögum og frjálsa miðlun slíkra upplýsinga og um niðurfellingu rammaákvörðunar ráðsins nr. 2008/977/DIM.


Síðast breytt 12.06.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.