Samantekt um þingmál

Vátryggingarsamningar

763. mál á 149. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að innleiða tilskipun Evrópusambandsins um dreifingu vátrygginga. Að tryggja netyendavernd.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til breytingar á lögunum sem einkum varða upplýsingagjöf og upplýsingaskyldu milli dreifingaraðila vátrygginga og vátryggingartaka. Einnig er lagt til að lögin nái til vátryggingatengdra fjárfestingarafurða. Þá eru lögð til ákvæði um hagsmunaárekstra og gagnsæi. Gert er ráð fyrir til að unnt sé að skjóta ágreiningi vegna réttinda og skyldna viðskiptavina til úrskurðarnefndar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um vátryggingarsamninga, nr. 30/2004.
  • Skylt mál: Dreifing vátrygginga, 764. mál (fjármála- og efnahagsráðherra) á 149. þingi (30.03.2019)

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/97 frá 20. janúar 2016 um dreifingu vátrygginga (endurútgefin).


Síðast breytt 11.06.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.