Samantekt um þingmál

Ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli

706. mál á 151. löggjafarþingi.
Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

Markmið

Að fella brott lagaákvæði sem hafa ekki lengur neitt hlutverk.

Helstu breytingar og nýjungar

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. (Kadeco) hefur lokið þeim verkefnum sem því voru falin með lögum nr. 176/2006. Þá er öðrum tímabundnum ráðstöfunum samkvæmt lögunum einnig lokið. Með frumvarpinu er því m.a. lagt til að felld verði úr gildi lagaákvæði sem fjallar um hlutverk Þróunarfélagsins. Jafnframt er lagt til að felld verði úr gildi ákvæði varðandi umbreytingaráðstafanir sem telja verður lokið. Þá er lagt til að heiti laganna verði breytt til að endurspegla efnisatriði lagaákvæða sem eftir standa.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli, nr. 176/2006.
Lög um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000.
Lög um stofnun opinbers hlutafélags um rekstur Keflavíkurflugvallar o.fl., nr. 76/2008.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með breytingum sem voru tæknilegs eðlis.

Aðrar upplýsingar

Samkomulag um skipulag, þróun og hagnýtingu lands í nágrenni Keflavíkurflugvallar. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, 16. desember 2019.



Síðast breytt 08.06.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.