Samantekt um þingmál

Atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs

775. mál á 151. löggjafarþingi.
Félags- og barnamálaráðherra.

Markmið

Að bregðast við þeim áhrifum sem heimsfaraldur kórónuveiru hefur haft á vinnumarkaðinn og starfsemi íþróttafélaga.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að ónýttur réttur til tekjutengdra atvinnuleysisbóta umfram þrjá mánuði eða í allt að sex mánuði falli ekki niður 1. október 2021 heldur verði framlengdur til 1. febrúar 2022. Þannig gætu þeir sem fá tímabundin tækifæri til þátttöku á vinnumarkaði áður en þeir hafa fullnýtt rétt sinn til tekjutengdra atvinnuleysisbóta í allt að sex mánuði áfram átt möguleika á að nýta rétt sinn til slíkra bóta þurfi þeir að nýju að fá greiddar atvinnuleysisbætur eftir að tímabundinni þátttöku á vinnumarkaði lýkur. Einnig er lagt til að einstaklingum, sem voru án atvinnu i upphafi heimsfaraldurs kórónuveiru og voru enn að fá greiddar atvinnuleysisbætur 1. maí 2021, fái 100.000 kr. eingreiðslu. Gert er ráð fyrir að framlengt verði það tímabil sem íþróttafélög geta sótt um greiðslur til Vinnumálastofnunar á grundvelli laga um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.
Lög um greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs, nr. 155/2020.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að kostnaður við framlengingu á tekjutengdum atvinnuleysisbótum verði um 840-880 milljónir kr. Þá er gert ráð fyrir að kostnaður vegna eingreiðslu verði um 260 milljónir kr. Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna greiðslna til íþróttafélaga verði óverulegur enda gert ráð fyrir að íþróttastarf geti farið fram með hefðbundnum hætti á seinni hluta árs í samræmi við áætlun stjórnvalda um afléttingu sóttvarnaráðstafana. Komi til þess að herða þurfi sóttvarnaráðstafanir að nýju má þó ætla að kostnaður vegna þessa úrræðis verði um 126 milljónir kr. á mánuði, verði sóttvarnaráðstafanir með sama hætti og í janúar á þessu ári, eða um 756 milljónir kr. yfir sex mánaða tímabil.

Afgreiðsla

Samþykkt með tæknilegri breytingu.


Síðast breytt 24.06.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.