30.8.2023

Setning Alþingis þriðjudaginn 12. september 2023

Alþingi verður sett þriðjudaginn 12. september. Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða miðvikudagskvöldið 13. september. Fyrsta umræða um fjárlagafrumvarp fyrir árið 2024 fer fram fimmtudaginn 14. september og föstudaginn 15. september.

Sjá nánar starfsáætlun fyrir 154. löggjafarþing.