11.9.2023

Setning Alþingis þriðjudaginn 12. september – dagskrá

Alþingi verður sett þriðjudaginn 12. september og hefst þingsetningarathöfnin kl. 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni.

Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sveini Valgeirssyni, sóknarpresti Dómkirkjunnar. Guðmundur Sigurðsson dómorganisti stjórnar Kammerkór Dómkirkjunnar og leikur á orgelið en Sigurður Flosason saxófónleikari leikur með í forspili og eftirspili.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setur Alþingi, 154. löggjafarþing. Strengjakvartett skipaður fiðluleikurunum Auði Hafsteinsdóttur og Matthíasi Stefánssyni, Önnu Elísabetu Sigurðardóttur víóluleikara og Örnólfi Kristjánssyni sellóleikara sér um tónlistarflutning við þingsetninguna.

Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 15:30. Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið verður m.a. hlutað um sæti þingmanna og fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2023 útbýtt.

Yfirlit helstu atriða þingsetningar

Kl. 13:25  Þingmenn ganga til kirkju.
Kl. 13:30  Guðsþjónusta í Dómkirkjunni.
Kl. 14:05  Þingmenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.

  • Strengjakvartett flytur Vorlauf eftir Hildigunni Rúnarsdóttur.
  • Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setur Alþingi, 154. löggjafarþing.
  • Strengjakvartett flytur Í fögrum dal eftir Emil Thoroddsen.
  • Forseti Alþingis stýrir þingfundi, býður þingmenn velkomna og flytur ávarp.

Kl. 14:35  Hlé á þingsetningarfundi fram til kl. 15:30.

Framhald þingsetningarfundar

Kl. 15:30  Forseti Alþingis flytur minningarorð (Jón Ármann Héðinsson), útbýting fjárlagafrumvarps 2024, tilkynningar og hlutað um sæti þingmanna.
Kl. 16:00  Fundi slitið.

Hljóðútsending verður frá Dómkirkjunni og sjónvarpsútsending frá þingsetningarfundi á sjónvarpsrás og vef Alþingis. Sjónvarpsútsending verður frá þingsetningarfundi á RÚV. Útvarpsútsending verður á Rás 1 frá messu og þingsetningu.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða miðvikudagskvöldið 13. september kl. 19:40.
Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2024 fimmtudaginn 14. september.