Tilkynningar

Aðalfundur Hins íslenska þjóðvinafélags haldinn í Alþingishúsinu

7.12.2023

Aðalfundur Hins íslenska þjóðvinafélags var haldinn í Alþingishúsinu, fundarsal Alþingis, fimmtudaginn 7. desember 2023. Félagið er eina félagið sem heldur aðalfund sinn í sal Alþingis og helgast það af sögu þess og tilgangi. Félagið var stofnað af alþingismönnum 19. ágúst 1871. Í lögum félagsins er það ákvæði að aðalfundir þess skuli haldnir á Alþingi annað hvert ár.

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, setti fundinn og stjórnaði honum. Líneik Anna Sævarsdóttir var fundarritari. Dr. Guðrún Kvaran prófessor emeritus, forseti Þjóðvinafélagsins, sat fundinn af hálfu forstöðumanna þess. Hún skýrði frá störfum félagsins frá síðasta aðalfundi og gerði grein fyrir reikningum þess fyrir árin 2021-2022. Voru reikningarnir samþykktir.

Að lokum fór fram kosning stjórnar félagsins og endurskoðenda þess. Dr. Guðrún Kvaran var endurkjörin forseti félagsins og Ármann Jakobsson nýr varaforseti í stað Gunnars Stefánssonar, sem hverfur úr stjórn. Stjórnarmennirnir Karl M. Kristjánsson, fyrrverandi aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis, og Lára Magnúsardóttir sagnfræðingur voru endurkjörin meðstjórnendur og Margrét Eggertsdóttir rannsóknarprófessor var kosin ný í stjórn, sem meðstjórnandi. Endurskoðendur voru endurkjörnir Friðrik Ólafsson, fyrrverandi skrifstofustjóri Alþingis, og Sigurður Jónsson frá Arnarvatni.

Þjóðvinafélagið gefur út ársritin Almanak og Andvara svo sem það hefur gert frá stofnun þess.