Tilkynningar

Afgreiðsla forsætisnefndar á erindi um meint brot Þórunnar Sveinbjarnardóttur á siðareglum fyrir alþingismenn

24.4.2023

Forsætisnefnd Alþingis hefur lokið afgreiðslu á erindi Ingu Sæland, dags. 18. mars sl., um meint brot Þórunnar Sveinbjarnardóttur á siðareglum fyrir alþingismenn. Bréf forseta Alþingis, dags. 18. apríl sl., er nú birt á vef Alþingis. Niðurstaða málsins var að erindinu var vísað frá með vísan til 1. mgr. 18. gr. siðareglnanna.

Við mat á ummælum þingmannsins, sem féllu á þingfundi 15. mars sl., var horft til þess að siðareglur þingmanna koma til fyllingar þeim skyldum sem þeir hafa samkvæmt stjórnarskrá, þingsköpum og úrskurðum forseta Alþingis um góða reglu. Í framkvæmd hefur verið miðað við að þingmenn njóti ríkrar verndar til þátttöku í opinni og frjálsri stjórnmálaumræðu í lýðræðisþjóðfélagi. Þá var enn fremur litið til þess að tjáning þingmanna lýtur fundarstjórn forseta Alþingis og athafnir eða athafnir forseta Alþingis við stjórn þingfunda sæta ekki endurskoðun. Það var niðurstaða málsins að skilyrði brysti til þess að forsætinefnd tæki erindið til athugunar, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 18. gr. siðareglna fyrir alþingismenn og 1. mgr. 6. gr. reglna um meðferð erinda og málsmeðferð samkvæmt siðareglum.