Tilkynningar

Forsætisnefnd afgreiðir siðareglumál um ummæli alþingismanns á þingfundi

30.11.2020

Forsætisnefnd afgreiddi á fundi sínum 24. nóvember 2020 erindi sem henni barst um meint brot Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur alþingismanns á siðareglum fyrir alþingismenn í tilefni af ummælum hennar á þingfundi 21. október 2020. Í erindinu var vísað til þess að hátterni þingmannsins hafi verið andstætt a., c. og e. lið 5. gr. siðareglna fyrir alþingismenn.

Niðurstaða forsætisnefndar er birt í meðfylgjandi bréfi til málshefjanda. Var niðurstaðan sú að skilyrði brysti til þess að nefndin tæki erindið til athugunar á grundvelli siðareglna fyrir alþingismenn, sbr. 1. málslið 1. mgr. 18. gr. siðareglnanna.