Tilkynningar

Græn umskipti og framtíðaráskoranir til ársins 2040 á vinnufundi framtíðarnefndar

12.4.2024

Fjöldi sérfræðinga og hagaðila kom á vinnufund framtíðarnefndar Alþingis í dag um græn umskipti og framtíðaráskoranir til ársins 2040. Þar var unnið að uppfærslu og dýpkun á fyrri sviðsmyndum sem Framtíðarsetur Íslands vann fyrir framtíðarnefnd á síðasta ári.

Á fundinum voru ræddar nokkrar mismunandi sviðsmyndir og skoðað hvernig samfélagið gæti litið út með tilliti til umfangsmeiri eða umfangsminni grænna umskipta.

Framtíðarsetur mun vinna skýrslu upp úr niðurstöðum fundarins og verður skýrslan birt á vef Framtíðarseturs og Alþingis.

 P1012451