Tilkynningar

Gunnar Þór Bjarnason hlýtur Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2022

21.4.2022

Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í dag, 21. apríl, á sumardaginn fyrsta. Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, setti hátíðina og afhenti Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta. Aðalræðumaður að þessu sinni var Berglind Hallgrímsdóttir, sérfræðingur hjá Norrænu ráðherranefndinni.

Verðlaun Jóns Sigurðssonar 2022 féllu í hlut Gunnars Þórs Bjarnasonar sagnfræðings. Gunnar Þór hefur með rannsóknum sínum og ritverkum lagt fram markverðan skerf til aukinnar þekkingar og skilnings á sögu Íslands. Rannsóknir hans hafa m.a. tengst sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og öðrum þáttum í samþættri sögu Íslands og Danmerkur á 19. og 20. öld.

Verdlaun-Jons-Sigurdssonar-2022-Gunnar-Thor-Bjarnason-og-Birgir-ArmannssonVerðlaunahafinn, Gunnar Þór Bjarnason, til hægri, tekur við verðlaununum sem Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, afhenti.

Verðlaunin hafa áður hlotið:

  • 2021: Auður Hauksdóttir, prófessor emerita.
  • 2020: Böðvar Guðmundsson, rithöfundur. ljóðskáld, leikskáld og fv. kennari
  • 2019: Vibeke Nørgaard Nielsen, rithöfundur og fv. kennari
  • 2018: Tryggvi Ólafsson, myndlistarmaður
  • 2017: Annette Lassen, rannsóknardósent
  • 2016: Dansk-Islandsk Samfund
  • 2015: Sigríður Eyþórsdóttir, tónlistarmaður og kórstjóri.
  • 2014: Bertel Haarder, fyrrverandi menntamálaráðherra Danmerkur.
  • 2013: Erling Blöndal Bengtsson sellóleikari.
  • 2012: Pétur M. Jónasson, vatnalíffræðingur og prófessor emeritus.
  • 2011: Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.
  • 2010: Søren Langvad, byggingarverkfræðingur og forstjóri.
  • 2009: Erik Skyum-Nielsen, bókmenntafræðingur og þýðandi.
  • 2008: Guðjón Friðriksson sagnfræðingur.


Alþingi veitir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta í minningu starfa hans í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þau verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála. Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar er að finna á vef Jónshúss.