Tilkynningar

Laus störf í öryggis- og þjónustudeild

23.2.2023

Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingum í tvær stöður þingvarða í öryggis- og þjónustudeild á skrifstofu Alþingis. Verkefni starfsfólks eru m.a. umsjón með öryggismálum, almenn þjónusta við þingmenn, starfsfólk og gesti, akstursþjónusta, aðstoð við útsendingar þingfunda og önnur verkefni sem deildinni eru falin.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjónusta við þingmenn og starfsfólk
  • Öryggisgæsla og akstur
  • Tæknivinna við útsendingu þingfunda
  • Eftirlit með húsnæði þingsins
  • Móttaka gesta og símsvörun

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf, iðnmenntun eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Marktæk starfsreynsla sem nýtist í starfi
  • Mjög góð tölvu- og tæknikunnátta
  • Aukin ökuréttindi eru kostur
  • Færni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta, önnur tungumálakunnátta kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem forseti Alþingis og Félag starfsmanna Alþingis hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína í starfið. Umsókninni skal einnig fylgja staðfesting á prófgráðum og upplýsingar um meðmælendur. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Eingöngu verður tekið við rafrænum umsóknum í ráðningarkerfi Orra.

Starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um. Skrifstofa Alþingis hefur hlotið jafnlaunavottun og starfar í samræmi við betri vinnutíma. Gildi skrifstofu Alþingis eru fagmennska, virðing og framsækni.

Nánari upplýsingar um starfsemi Alþingis og skrifstofu þingsins er að finna á vef Alþingis.

Starfshlutfall er 100%.

Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2023.

Nánari upplýsingar veitir

Sigurlaug Skaftad. McClure, deildarstjóri öryggis- og þjónustudeildar – sigurlaugs@althingi.is – 563 0500

Smelltu hér til að sækja um starfið