Tilkynningar

Nafnasamkeppni um nýbyggingu Alþingis

18.10.2023

Boðað er til samkeppni um nafn á nýja skrifstofubyggingu Alþingis. Samkeppnin er opin almenningi og verður tilkynnt um niðurstöðuna á fullveldisdaginn, 1. desember nk., en ráðgert er að nýbyggingin verði tekin í notkun á næstu vikum.

Í dómnefnd um nafnið verður undirnefnd forsætisnefndar um nýbyggingu, ásamt skrifstofustjóra Alþingis, þ.e. Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, varaforsetarnir Líneik Anna Sævarsdóttir og Andrés Ingi Jónsson, og Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri. Dómnefndinni til aðstoðar verða sérfræðingar skrifstofunnar.

Löng hefð er fyrir nafnagjöf húsa í eigu þingsins á Alþingisreit. Flest húsin eru uppgerð eldri hús og bera nöfn þeirra vitni um sögu húsanna og þeirra sem þau byggðu (Kristjánshús, Blöndahlshús, Skjaldbreið, Skúlahús og Þórshamar). Yngsta húsið á reitnum (áður en nýbyggingin kom til sögunnar) er Skáli, þjónustubygging Alþingis, sem tekin var í notkun haustið 2002.

Frestur til að skila inn tillögum er til 7. nóvember og mun dómnefnd ljúka störfum fyrir 1. desember.

Hér að neðan er hægt að fylla inn í form til að taka þátt í nafnasamkeppninni.