Tilkynningar

Nefndadagar 26. og 27. maí

26.5.2020

Í samræmi við breytingu sem forsætisnefnd samþykkti á fundi sínum fyrr í dag verða fundir í fastanefndum 26. og 27. maí. Á nefndadögum gildir sérstök fundatafla um fundi fastanefnda og venja er að fundað sé bæði fyrir og eftir hádegi.

Við ákvörðun um fundatíma á nefndadögum er reynt að gæta samræmis en jafnframt tekið mið af stöðu mála í nefndum og fundaþörf nefndanna.

Gert er ráð fyrir að nefndir fundi á eftirfarandi tímum:

Þriðjudagur 26. maí

  • Kl. 9–12: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd
  • Kl. 12–13: Fundur forseta með formönnum fastanefnda
  • Kl. 13–16: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd

Miðvikudagur 27. maí

  • Kl. 9–12: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd
  • Kl. 12–13: Hádegishlé
  • Kl. 13–15: Þingflokksfundir
  • Kl. 15–18: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd


Endanlegir fundatímar nefnda og dagskrár funda birtast á vef Alþingis.