Tilkynningar

Nefndadagar 4. og 5. júní

2.6.2020

Í samræmi við breytingu sem forsætisnefnd samþykkti á fundi 2. júní 2020 verða fundir í fastanefndum 4. og 5. júní. Á nefndadögum gildir sérstök fundatafla um fundi fastanefnda og venja er að fundað sé bæði fyrir og eftir hádegi. 

Við ákvörðun um fundatíma á nefndadögum er reynt að gæta samræmis en jafnframt tekið mið af stöðu mála í nefndum og fundaþörf nefndanna.

Gert er ráð fyrir að nefndir fundi á eftirfarandi tímum:

Fimmtudagur 4. júní

  • Kl. 9–12: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd
  • Kl. 12–13: Hádegishlé
  • Kl. 13-16: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd, velferðarnefnd.

Föstudagur 5. júní

  • Kl. 10–12: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd, velferðarnefnd.
  • Kl. 12–13: Hádegishlé
  • Kl. 13–16: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd

Endanlegir fundatímar nefnda og dagskrár funda birtast á vef Alþingis.