Tilkynningar

Nefndadagur 5. febrúar

29.1.2020

Samkvæmt starfsáætlun Alþingis er nefndadagur miðvikudaginn 5. febrúar. Á nefndadögum gildir sérstök fundatafla um fundi fastanefnda og venja er að fundað sé bæði fyrir og eftir hádegi. Gert er ráð fyrir að nefndir fundi á eftirfarandi tímum:

Miðvikudagur 5. febrúar
• Kl. 9-12: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd.
• Kl. 13-15: Fundatími þingflokka
• Kl. 15-18: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd.

Endanlegir fundatímar nefnda og dagskrár funda birtast á vef Alþingis.