Tilkynningar

Niðurfelling mála um aðgang að greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf.

15.9.2023

Forsætisnefnd hefur haft til umfjöllunar beiðni fjölmiðlamanna um aðgang að greinargerð setts ríkisendurskoðanda frá júlí 2018 um Lindarhvol ehf. Málið má rekja til ákvörðunar forsætisnefndar 2. febrúar 2021 um endurupptöku úrskurðar nefndarinnar þar sem beiðni blaðamanns á Viðskiptablaðinu um aðgang að téðri greinargerð var synjað.

Í ljósi þess að greinargerð setts ríkisendurskoðanda hefur þegar verið birt opinberlega eru brostin skilyrði til þess að forsætisnefnd hafi málið til frekari umfjöllunar. Er málinu því lokið af hálfu forsætisnefndar.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur málefni Lindarhvols ehf. hins vegar enn til umfjöllunar á grundvelli skýrslu Ríkisendurskoðunar um Lindarhvol ehf. frá apríl 2020.

Greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf.