Tilkynningar

Niðurstaða dómnefndar í hönnunarsamkeppni um nýbyggingu á Alþingisreit

16.12.2016

Tilkynnt verður um niðurstöðu dómnefndar í hönnunarsamkeppni um nýbyggingu á Alþingisreit laugardaginn 17. desember, kl. 14.

Sýning á þeim tillögum sem nefndinni bárust verður opin á 1. hæð Landssímahúss (gengið inn frá Austurvelli) kl. 14–17 sunnudaginn 18. desember og á virkum dögum kl. 16–18 fram að áramótum.