Tilkynningar

Opinn fundur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd með umboðsmanni Alþingis 1. nóvember - bein útsending

30.10.2012

Opinn fundur verður haldinn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis með umboðsmanni Alþingis fimmtudaginn 1. nóvember kl. 10.00-12.00. Fjallað verður um ársskýrslu umboðsmanns Alþingis vegna ársins 2011 (pdf). Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu, á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.

Gestir fundarins eru Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis, Berglind Bára Sigurjónsdóttir skrifstofustjóri og Særún María Gunnarsdóttir lögfræðingur.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Dagskrá fundarins.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.