Tilkynningar

Opinn fjarfundur velferðarnefndar miðvikudaginn 10. mars

8.3.2021

Velferðarnefnd heldur opinn fjarfund miðvikudaginn 10. mars kl. 13:25. Tilefnið er umfjöllun nefndarinnar um spilafíkn og áhrif á líf og fjölskyldu, meðferðarúrræði og stefnu stjórnvalda. Gestir fundarins verða Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.

Áætlað er að fundurinn standi frá kl. 13:25 til 15:00.

Vegna takmarkana á fundahaldi fastanefnda er ekki unnt að hafa fundinn opinn með hefðbundnum hætti eða taka á móti fjölmiðlum á nefndasviði Alþingis. Því verður fundinum streymt á vef þingsins og sjónvarpsrás þess.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.

Fjarfundur-velferdarnefndar-26-mars