Tilkynningar

Opinn fjarfundur velferðarnefndar þriðjudaginn 11. janúar um framkvæmd sóttvarnaaðgerða

7.1.2022

Velferðarnefnd Alþingis heldur opinn fjarfund þriðjudaginn 11. janúar kl. 10:00. Tilefnið er umfjöllun nefndarinnar um framkvæmd sóttvarnaaðgerða.

Gestir fundarins verða Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Már Kristjánsson, yfirlæknir Covid-göngudeildar Landspítalans.

Vegna takmarkana á fundahaldi fastanefnda er ekki unnt að hafa fundinn opinn með hefðbundnum hætti eða taka á móti fjölmiðlum á nefndasviði Alþingis. Því verður fundinum streymt á vef þingsins og sjónvarpsrás þess.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.